Býflugur.is
Frjókaka

 Frjókaka eða frjóbrauð.

 

Frjókakan er mjög mikilvæg næring f bf og ungviðið.

Það er mjög súrt á bragðið og svíður á tungu.

 

Hvað er frjókaka ?

Þegar bf safna frjókorni límir hún þessi annars lausu korn saman með munnvatni og nektar úr hunangssarpinum. Frjókornin klístrast því saman og bf getur safnað þeim í frjókörfuna.

Þegar bf kemur heim í búið eru frjóklumparnir settir inn í hólf til geymslu og er pakkað inn í hólfið af bf sem „vinna“ í búinu. Þegar hólfið er orðið fullt af frjókorni  er sett klípa af hunangi yfir. Það er um 185 mg af frjókorni í hverju hólfi.

 

Frjókorn

Eru karlkyns erfðaberar jurta sem innihalda hin ýmsu næringarefni innan í sér er hörð „skelin“ er ómeltanleg fyrir bf og þess vegna gerist nokkuð merkilegt efnaferli í búinu.

 

Gerjun.

Í hólfunum gerjar hið pakkaða frjókorn (hulið klípu af hunangi) á 2 vikum og inniheldur þá mikið magn mjólkursýru. Við þetta ferli þá leysist frjókorna skelin(sem að meginuppistöðu er gert úr sterkju) upp í auðmeltanleg efni fyrir bf. Það sem er athyglivert er að öll næringarefni eru óskemmd og rotvarin.

 

Rotvörn

Þessi gerjaða afurð kallast frjókaka eða –brauð (enska=bee bread, sænska= bibröd) og það eru mjólkursýrugerlar sem valda gerjuninni. Mjólkursýrugerlar nýta sykurtegundir og sterkju í mismunandi matvælum sem fæðu. Þær mynda m.a. mjólkursýru. Það er þetta efnaferli sem kallast gerjun og mjólkursýran rotver matvæli með lágu sýrustigi sínu.

 Mjólkursýrugerlarnir drepast síða að hluta til að þeir hafa étið upp næringu sína og að hluta til vegna hins lága sýrustigs sem myndast

Þetta veldur því að engir aðrir gerlar eða myglusveppir geta skemmt matvælin.

Bf verða að nærast á þessari frjóköku til að geta framleitt Royal Jelly fyrir dr. og ungviðið.

 

Örverurnar

Það hafa fundist 107 mismunandi tegundir myglusveppir, 81 mismunandi tegundir gerjunar gerla og 29 mismunandi tegundir gerla í frjóköku.

Hluti þessara örver kemur frá blómunum sem bf safna frjókornum frá en í hunangssarpi bf hafa fundist 13 mismunandi tegundir mjólkursýrugerla og 3-4 tegundir sem ekki er hægt að greina og úr „ferskri“  frjóköku (sem ekki hefur lokið gerjunarferli sínu) fundust 9 af þessum 13  tegundum auk gerla af tegundinni Pasteurelaceae .   

Heimsóknir: 
Stjórnun