Býflugur.is
Blóm sem eru mikilvæg f fæðuöflun býflugna

Hér verður getið þeirra blómategunda sem skipta máli (fyrir afkomu búanna)hvað varðar gæði frjókorna og magn nektars. Ekki má gleyma þeim geysilega fjölda blóma sem þarf til að eitthvað að ráði fáist til búsins. Einnig er fjöldi annarra blómategunda sem flugurnar leita í en það er þetta með fjölda blóma sem skipta máli . Á öðrum undirhlekk má sjá hvaða önnur blóm eru þekkt fyrir að laða að sér skordýr til frjófgunar.Þau blóm sem getið er í smáaletrinu finnast á Íslandi en ég þarf að kanna nánar hvað þau gefa af sér.

 

Apríl

Hóffífill blómstrar í byrjun/miðjan apríl. Ef veður er gott og flugurnar fljúga á blómin er þetta venjulega fyrsti frjókornagjafinn og gefur ríkulega.Frjókornaklumparnir eru brúngulir.                                                      Blómstrar fram í byrjun júní

 

 

Krókusar blómgast einnig snemma en eru þó í  svo litlum fjölda að frjókorn þeirra skipta líklega litlu  máli

 

Víðir

Hinar ýmsu víðitegundir blómgast venjulega í apríl og eru allra mikilvægustu frjókorna gjafar búsins, þá fyrst fer drottningin að leggja egg að einhverju ráði svo fremi sem veðurfar leyfir útflug. Frjókornaklumparnir eru líklega ljós appelsínugulir. Blómstra fram í júní

 

Loðvíðir

Krækilyng blómgast einnig snemma en óvíst er hvort flugurnar fljúga á það.

Túnfífillinn byrjar að blómstra í maí á heitari stöðum og í góðu skjóli. Er mjög mikilvægur vegna frjókorna og einnig blómasafa því hann er mjög víða í görðum og túnum. Frjókornaklumparnir bera sterkan appelsínugulan lit. Blómstra langt fram í júlí og stundum endurblómstrun síðsumars.

                                                                       

 

 

 

 

 

 

 

 

 

MAÍ

 

 

Rifsber, sólber og stikilsber blómgast í byrjun maí og gefa vel af sér en blómstra styttri tíma en ofannefndar tegundir

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Júní

Bláberjalyng  blómstra fyrri hluta mánaðarins sem og aðalbláberjalyng

 

 

 

 

 

 

 

 

Skarifífill(Leontodon autumnalis L) blómstrar seinni hluta júní og langt fram á haust.Hér falla einnig undir, unda-,fella-,íslands- og krossfífill.

 

Hvítsmári, þessi blóm eru mjög mikilvæg vegna fjölda þeirra og hversu lengi þau blómstra

sem sjá má eru frjókornin brúnleit og gefa blómin ríkulega af sér bæði frjókorn og nektar.

 

Rauðsmári finnst víða og gefur einnig vel af sér.

 

 

Blágresi(Gerianium sylvatium) er mjög mikilvægt fyrir norska býbændur norðan "heiða"og ætti því einnig að skipta máli hér á landi

 

 

 

 

 

 

 

Blóðberg (Thymus praecox ssp. articus)blómstrar seinnihluta júní og getur blómstrað fram í ágúst er líklega hvergi í heiminum eins algengt og hér á landi. Hunangsbragð og keimur er mjög einkennandi og þykir lostæti.

 

 

 

Fellafífill

 

Fjalldalafífill (Geum  rivale) virðist einnig gefa af sér

 

 

 

Brennisóley segja norðmenn að gefi af sér nektar og frjókorn en ég hef aldrei heyrt þess getið i Svíþjóð né séð bf. sækja í þau blóm.

 

 

 

Júlí

 

Sigurskúfur er geysilega mikilvæg að hausti og vex oft í miklum breiðum.

 

 

 

Beitilyng getur gefið vel af sér.

 

Ágúst

 

 

Mörg  blóm blómstra langt fram í september og jv. fram í október ef veðurskilyrði eru heppileg. Þar ber fyrst að nefna skarifífil sem blómstrar lengst auk hvítsmára og beitilyngs.

  Hunangsurt(Phacelia tanacetifolia) er einært blóm sem blómstrar u.þ.b. 8 v eftir sáningu og hef ég sáð því á hverju ári á 200-300 fermetra, gefur geysilega vel af sér bæði nektar og frjókorn og blómstrar fram í fyrstu hörðu frost á haustin.

Heimsóknir: 
Stjórnun