|
Þetta er í vinnslu vænta má breytinga á næstu dögum
Haust
Að vetra býflugur
Fyrri hluti
Þetta er eitt allra mikilvægasta atriði býflugnaræktar, það er að undirbúa búið fyrir veturinn. Um sumarið hafa býflugur safnað forðanæringu (þetta eru einu skordýrin fyrir utan maurategundir, sem safna forðanæringu til vetrarnotkunar) og það er einmitt þessi vetrarforði sem er hunangstekja okkar býflugnabænda. Venjan er að farið sé í gegnum býflugnabúið í síðasta lagi í byrjun september eða eftir veðri. Þá eru teknir burtu allir rammar sem innihalda hunang en rammar sem innihalda mikið af frjókorni (oft marglitt, eða dökkt á litinn) og allir rammar sem innihalda ungviði eða egg eru skildir eftir. Líklega er skynsamlegast að hafa búin á 2 kössum Norskum (20 römmum)eða 2-3 kössum, ¾ Langstroth heldur en að þröngva þeim saman á einn 10 ramma kassa.
(Það borgar sig að sameina minni bú (sem eru léttari) og þá þarf að vernda “betri” (yngri/gæfari) drottninguna, því betra er að eiga 1 lifandi bú að vori en 2 dauð !!! Þá þarf að finna “verri” drottninguna og drepa hana og setja síðan búin (drottningarlausa búið ofan á ) saman með 1 síðu af dagblaði og muna að stinga nokkur göt á blaðið fyrst með penna . Mikilvægt er að fóðra búið strax eftir sameininguna.)
Strax og þetta hefur verið gert þá verður að fóðra býflugurnar og það er hægt að gera á ýmsan hátt en venjan er að gefa þeim sykurlausn, sem er blandað í sjóðandi heitt vatn, 2 lítrar á móti 3 kg af sykri (hræra upp allan sykurinn) og gefið annaðhvort í fötum með fullt af götum á eða með netopi, eða sérstaka fóðrara, sem hægt er að kaupa. Það er einnig hægt að smíða þessa fóðrara sjálfur úr timbri eða útbúa á annan hátt.
Það er mikilvægt að það sé sæmilega hlýtt í veðri , þegar fóðrað er, því annars sækja flugurnar sér ekki sykurvatnið og því getur samfélagið drepist úr svelti fyrr eða síðar. Ef maður er það seint úti að ekki hægt að fóðra búið, þá borgar sig að skilja eftir hunangsramma, þannig að kassinn með öllu sé a.m.k. 20 kg, til að vera öruggur um að þær séu með nægt fóður og fara síðan í búið snemma vors og setja til þurrsykur. Þó er sjálfsagt að reyna að láta þær taka eitthvað af sykurvatni niður, venjan er að gefa þeim um 20 kg af sykri blandað vatni þá þarf eðlilega að gefa þeim nokkrum sinnum meðan þær taka við.
Búið þarf að vera minnst 20 kg með öllu annars er hætta á að þær drepist af svelti um veturinn.
Ef þið hafið ekki vetrað fyrir frost verður að skilja eftir minnst 10 ramma fulla af hunangi hjá búinu og líklega er best að koma þeim f á 2 -3 kössum.
Ég hef einnig séð að ef ekki næst að fóðra fyrir frost að þá hafa menn sett dagblaðssíðu ofaná rammana skilið eftir rifu td í öðrum gaflinum og hellt ofan á 15 kg af þurrsykri-passa bara að ekki renni niður í búið- úðað yfirsmá vatni með úðabrúsa (til að "festa" sykurinn) sett tóman kassa yfir og einangrun og þak yfir. Þannig gets bf sleikt upp sykurinn og nota rakan sem myndast í búinu yfir veturinn til að leysa upp sykurinn.
Seinni hluti vetrunar
Þegar búið er hætt að taka sykurvatn er beðið eftir fyrsta frostkafla vetrar. Frost þarf að vera nokkra daga til að hægt sé að flytja búin.
Líklega er best að nota djúpa botna þ.e. eins og sumir norsku botnarnir eru þegar búið er að fjarlægja botnplötuna þá eru nokkrir cm niður á netið. Í öllu falli þarf að fjarlægja plötuna svo næg loftun verði. Einnig er hægt að lyfta búinu af botninum sem það stendur á yfir á slíkan botn.
Ef þið eruð ekki með botna sem ekki bjóða upp á þann möguleika að auka rýmið undir búinu þá má smíða ramma sem settur er milli botns og kassans sem lyftir neðsta kassanum 3-5 cm .
Eða eins og Kristjana hefur gert
“Amerísk hjón, býflugnabændur sem voru gestir félagsins okkar árið 2006 (minnir mig ) sögðu að loftun búanna væri höfuð atriði.
Þau ráðlögðu að bora göt í efsta kassa á tvær gagnstæðar hliðar. Stærð gatanna er þannig að flugur geti skriðið um þau. Leggja striga utan yfir búið/kassann - þannig að hann nær niður fyrir götin - en hangir laus - þannig lokar hann ekki fyrir þau en dampurinn úr búinu þéttist í striganum- og flugurnar komast hindrunarlaust frá búinu um þessi göt.
Ég gerði þetta tímanleg og hafði korktappa í götunum fram að vetri að ég kippti þeim úr. Ég tók eftir því eins og hjónin höfðu sagt að flugurnar nota síðan þessi göt til að skríða út um ef aðal opið er orðið stíflað.
Ef það gerist þá kenndu þau okkur það ráð að nota t.d. járnherðatré til að hreinsa frá opinu innan frá.
Þetta gafst svo vel að ég hef ekki þurft að hanna neitt betra áhald - maður stingur s.s. bara öðrum "herða"endanum á járninu inn um opið og dregur til sín - þá mokast dauðu flugurnar út, þannig má hreinsa nægilegt svæði.
Ég hef ekki haft plötur í botninum á veturna - (kunni bara ekki á það) - en búin standa á brettum og ég hef sett einangrun - frauðplast- undir brettið sjálft.
Ég hef búið nosturslega um búin - með frauðplasti - utan um allar hliðar og þak -þó þannig að holrúm var að búinu sjálfu og frauðplastið náði aðeins niður að miðjum neðsta kassa.
En einnig hef ég alveg látið vera að skýla búin fyrir veturinn - Þann vetur fauk annað búið og lá opið að hluta í a.m.k. sólarhring. Ég rétti það við og taldi það dauðadæmt að sjálfsögðu - sem þó varð ekki raunin - flugurnar mættu sprækar til leiks þegar leið að vori - Þetta fannst mér afar athyglisvert. !!!!!"

Eins og við höfum oft rætt um að þá hafa ýmsar tilgátur verið uppi um það hvers vegna búin drepast og grunur minn er sá, að þetta sé þá fyrst og fremst vegna vindkælingar sem er það mikil hér á vetrum, að búin ráði ekki við það. Llíklegast ná búin ekki þeirri stærð að þola slíka veðráttu og þess vegna teljum við að það sé öruggast að geyma þau innanhúss yfir vetur, þ.e.a.s. í nóv-des, þegar búið ætti að vera komið í vetrarhvíldina, hefur þá safnast í klasa og hreyfir sig lítið fyrr en fer að vora, þá eru búin flutt, flugopi lokað , muna að sjá til þess að netop sé undir búinu, þannig að þær kafni ekki. Flytja búið innanhúss í helst sæmilega einangrað hús, þannig að hitasveiflur verði ekki miklar, þó sól skíni úti og sjá til þess að búin séu sett þannig að ekki komist að mýs/rottur. Hugsanlega er þá best setja búin upp á lárétt rör og setja t.d. götuð fötulok á rörin, þannig að mýs geti ekki gengið eftir rörunum inn að búunum. Þá er það best að hafa a.m.k. 2 rör sem liggja í einhverri hæð yfir gólfi, þannig að mýs nái ekki að hoppa upp né að geta stokkið niður á búin ofan frá.
Líklegt er að það sé óheppilegt að geyma bú inni t.d. í gámum eða þess háttar, því að það vill hitna verulega í gám sem ekki er einangraður þegar sólin gassar og er það óheppilegt fyrir búin þá verða flugurnar órólegar og vilja komast út. Einnig er mikilvægt að það sé góð loftræsting í rýminu sem notað er.
Ég hef einnig séð greinar frá norðurhluta Bandaríkjanna og Kanada, þar sem að menn hafa byggt kassa, utan um t.d. 4 bú. Búin er t.d. látin standa á palletu og utan um þetta allt saman er smíðaður kassi með loki, sem er lokaður neðan til, þannig að ekki kuli um búin neðanfrá, og síðan er þá loftrifa á tveimur hliðum, ofan til, ca 2-3 cm., þetta er smíðað úr einangrandi efni og mætti hugsa sér að einangrunarplötur, gætu dugað gegn stormum á Íslandi.
Ég vona að allir hafi geymslu, vel einangraða þar þarf að vera myrkur og góð loftræsting, hitastig má ekki fara yfir 8 gr inni í geymslunni og ef hægt er að stjórna hita eru 2-4°C heppilegastar . Þetta þarf að vera frágengið eftir fyrstu frost.
Þau bú sem hafa lifað af hér vetur, hjá okkur, sem mér er kunnugt um, eru þá þau bú sem ég kom með haustið 1998 og geymdi inni í þéttu skógarkjarri í Heiðmörkinni, þar voru 3 bú geymd um vetur og 2 lifðu af og hjá Rúnari, hafa bú lifað 1 vetur á Stokkseyri, með skjólgirðingu (pallettum) í kring og einnig hafa bú lifað hjá honum í þéttu skógarkjarri uppi á Kjalarnesi, í nokkra vetur. Hjá Kristjönu hafa 1-2 bú lifað vetururna frá 06 bæði með og án skjóls hafa plummað sig vel. Hjá Matthildi hafa 1-2 bú lifað flesta vetur í hálf niðurgrafinni óeinangraðri geymslu í fleirri ár. Björn hefur geymt sín bú inni í gamalli stórri hlöðu og llifðu 3 bú veturinn 08-09. Hann lokaði ekki flugopi þeirra. Hjá Þorsteini lifðu eh bú veturinn 09 en voru mjög smá um vorið.
Grein frá
-Canadian Associtation of Professional Apiculturists The Biology and Management of Colonies in Winter Adony Melathopoulos
Beaverlodge Research Farm, Box 29, Beaverlodge, AB T0H 0C0 melathopoulosa@agr.gc.ca
Líffræði Vetrunar
Í náttúrulegu umhverfi nýta býflugur(bf) tvær aðferðir til að viðhalda hita búsins að vetri: 1) val á vel staðsettu og vernduðum bústað (Tafla. 1)
Eyginleikar væntanl bústaðar Tíðni búsetu ef gefið val
|
Hæð búsins frá jörðu
|
5m > 1m
|
|
Sýnileiki/skjól búsins
|
Sýnilegt > falið
|
|
Fjarlægð frá móðurbúi
|
Skiptir ekki máli
|
|
Flugop
|
12,5fercm > 75 fcm
|
|
Staðsetning flugops
|
Á botninum > efst
|
|
Flugátt ops
|
Suður > norður
|
|
Rúmmál bústaðarins
|
10 l < 40 l> 100 l
|
|
Áður nýtt af bf
|
Notað > nýtt
|
|
Lyktnæm hormón
|
Með > án
|
|
Rakastig rýmisins
|
Rakt sag = þurrt
|
|
Ytrabyrgi
|
Veggir með götum = heilir veggir
|
|
|
|
|
|
>Þíðir frekar enn, < síður enn
|
„Gátlisti“ fyrir leit bf að nýjum bústað
(Seeley and Morse 1978)
„Gátlisti“ fyrir leit bf að nýjum bústað
(Seeley and Morse 1978)
og 2) Klasamyndun.
Klasinn er byggður uppí tveimur hlutum (mynd 1): .bmp)
1) er þéttu ytra hýði þar sem býflugurnar festa sig saman, stefna höfuðs þeirra í átt að miðju klasans og 2) er laus innri kjarni þar sem býflugurnar geta hreyft sig frjálst. Ytri umgjörð klasans(skurnin), einangrar og sem þéttust er skurnin jafn einangrandi og fjaðrir fugla eða loðfeldur spendýra (0,1 W / kg / º C). Klasinn færist hægt frá tómur hólfum til þeirra sem eru fullar af hunangi. Þessi hreyfing er yfirleitt upp og til hliðar, aldrei niður.
Áður en við höldum áfram, eru fjögur mikilvæg hitastig sem þú ættir að kunna:
1) hitastig ungviðis = 32-36 °C,
2) minnst hitastig brjóstkassa sem þarf til flugs = 27 ºC, 3) lágmark hitastig sem þarf til að virkja flug vöðva hita upp (hliðstætt spendýrum "hrollur") = 18 ºC og 4) fara í "kulda dá" = 6 °C.
Klasamyndun bf byrjar þegar hitastig fellur undir 18°C(hér á líklega við inni í búinu). Stærð klasans dregst samann þar til umhverfishiti nær -10ºC en þá nær klasinn mestri þéttingu. Klasinn þéttist 5-falt á milli 18ºC og -10°C. Við lægra hitastig en -10ºC er aðeins hægt að viðhalda hita klasans með aukinni hitamyndun kjarnans
(mynd 2). 
Efnaskiptahraði sem hlutfall af umhverfishitastigi
Kjarni klasans skapar þennan hita með því að "virkja" flugvöðva sína. Þetta ferli þarfnast brennslu á hunangi, sem hvatti WF Cheshire að skrifa 1888: "Hver býfluga ... er örlítill bræðsluofn sem framleiðir ferli í vefjum sínum og vökva sem er nákvæmlega efnafræðilega jafngilt oxunar hunangs ...".
Viskuorð – Efnaskiptahraði búsins er lægstur þegar hitastigið er 5-10°C. Þess vegna reyna býflugnabændur, sem vetra bú sín innanhúss, að halda hitastigi við 5°C : býflugurnar nota minnst magn af hunangi við þetta hitastig.
Talið er að býflugur framleiða 0,68 kg af vatni á hvert kg af hunangi sem þær neyta. Þetta vatn er mikilvægt fyrir býflugurnar og þær nota það til að þynna hunang, fæða ungviði og skola efnaskipta úrgangi úr líkama sínum. Engu að síður, losnar sumt af vatninu sem gufar, sem í sjálfu sér er mikilvægur þar sem ungviðið þroskast best við 40% rakastig. Hins vegar kemur upp vandamál þegar umhverfis hitastigið fellur. Kalt loft inniheldur ekki eins mikinn raka og hlýtt loft, svo hlýtt rakt loft yfirgefur klasann, þéttist á vaxkökunum og innviðum kúpunnar. Býflugurnar geta ráðið við smá raka utan klasans, en ef raki drýpur aftur á býflugurnar kælir það þær. Þetta atriði er mikilvægt þegar við lítum á hlutverk efra flugopi í kúpunni.
Býflugur minnka orkunotkun sína um veturinn með því að "stilla hitamælin lægra". Þær ná þessu með því að minnka og stöðva varp drottningar þar með magn ungviðis að hausti og snemma vetrar (mynd 3),
Magn ungviðis (fertommum) yfir vetrarmánuðina,sem er talið erorsakað af styttri dagslengd. Laus við að þurfa að viðhalda hita við ungviði (muna: 32-36°C), lækkar kjarna hita framleiðsla þeirra og þannig, dregur úr neyslu þeirra á hunangi. Fóstrun ungviðis byrjar hægt og rólega aftur eftir vetrarsólstöður. Hækkuð efnaskipti vegna uppeldis ungviðis þýðir hærri hunang neysla verð í lok vetrar. Í einni rannsókn, sýndu niðurstöður að búin átu hunang tvisvar sinnum hraðar í mars (0,84 kg á viku) samanborið við desember (0,42 kg á viku).
"Býflugur frjósa ekki í hel á vetrum- þær svelta" - Herman Rauchfuss, Sr Gættu þess að búin hafia nógan vetrarforða!
Hversu mikið hunang notar búið ?(á 2 kössum)?
Staðsetning Ráðlagt magn vetrarfóðurs
Saskatchewan 80-90 lb (36-40 kg)
Wisconsin, New York State 60-80 lb (27-36 kg)
Kentucky 55-60 lb (24-27 kg)
California, N. Carolina 30 lb (13 kg)
Þyngd eru aðeins fyrir vetrarfóður. Kúpan og býlugurnar vega u.þ.b. 27 kg , þannig að til dæmis þurfa búin í Saskatchewan að vega samtals 54-63 kg eftir fóðrun.
"Þrjátíu pund meira af hunang(vetrarfóðri) en það sem búið að meðaltali er ódýr trygging, samanborið við hættuna á að missa bestu búin þar sem þau hafa jafnvel einn pund of lítið" - CL Farrar
Hvernig lifa búin af langan vetur Kanadískrar gresju ef þær hætta að ala upp ungviði? Ætti búið ekki smám saman að minnka og deyja út? Þó búið skreppa talsvert saman frá ágúst-mars eru búin fær um að halda fjölda sínum með "framleiðslu" vetrarbýflugna. Vetrarbýflugur lifa miklu lengur (100 + d) en sumarbýflugur (~ 30 d)
(mynd 4)
.jpg)
Línurit yfir meðallifunartíma bf á 12 d fresti (frá 14 júlí til hausteldi ungviðis hætti). Línuritið sýnir greinileg umskipti úr stuttum líftíma sumarbf. og lengri líftíma vetrarbf. Sem byrjar með bf. fæddum þann 31. ágúst (punkta feril). Gögnum var safnað með því afð Harris í Suður-Manitoba og seinna greind af Matillaet al 2001.
Kveikja búsins til að skipta frá myndun sumar- til vetrarbýflugna er ekki þekkt, en leiðandi tilgáta er að það er einfaldlega að þær hætta að ala ungviði á haustin. Eldi ungviðis er erfitt og orkufrekt starf og býflugur sem klekjast í búi án ungviðis(seint á haustin)þurfa ekki að ala upp ungviði og lifa því lengur (framleiðsla fóðursafa í munnvatnskirtlum þeirra er afar orkufrek og sýnilega lýjandi ferli).
Þó að vitneskjan um hvað kemur þessu af stað þekkist ekki, er það ljóst að vetrarbýflugur eru líkamlega frábrugðnar sumarsystrum sínum : "býfl. sem hafa vetrað hafa verulega meiri þurrvigt, prótein, fita, þríglýseríð, glycogen og glúkósa innihald en býfl. sem lifa ekki veturinn.
(Matilla et al 2001).
Hvernig byrjar búið að ala upp ungviði á miðjum vetri þegar það er ekkert ferskt frjókorn að safna? Í fyrstalagi,geta býfl. geymt töluvert magn af frjókorni í hólfum vaxkökunnarfyrir veturinn. Þær virðast nota þennan forða til að ala upp ungviði þar sem bú með mikið magn frjókorna forða hafa meiri fjölda býfl. að vori
(Mynd 5):
.jpg)
Sambandið milli frjókornaforða í búi að hausti og fjöld bf.í búinu að vori (seinnihl.-mars / snemma-vors). Gögn var safnað yfir tvö ár í Laramie, Wyoming. Farrar 1936
Sjáið muninn upp á um 20.000 fleiri bf. hjá búum sem fara inn í veturinn með ófullnægjandi eða mikið frjókornafóður. Bf. virðast einnig vera fær um draga af líkamsbirgðum sínum af prótíni til að fæða ungviðið.
Búið ætti að fara í vetrun með 3-6 vel fyllta ramma af frjókorni. Seinni hluta vetrar, segir Farrar (1936) búin geta notað nánast allt að 1 ramma af frjókorni á viku. Ef búin hafa ekki mikið geymt frjókorn, munu þeir njóta góðs af viðbótar frjókorni allt þar til eðlilegt aðflæði af frjókorni byrjar.
Það er erfðafræðilegur munur á getu bf. til vetrunar, en það er óvíst hvaða ákveðin einkenni eru tengd við þennan mun. Munurinn liggur örugglega í undirtegundum. Í Þýsku svörtu bf.(dökku) í Norður-Evrópu (A. mellifera mellifera) hefur bestu vetrunargetu allra annarra evrópskra stofna. Bf.þessa stofns, hins vegar, er erfitt að venja við ræktun(að mannskepnunnar þörfum). Meðal „ræktraðra“ stofna lifa Carniolan (A. M. carnica) og Mið-Evrópu Caucasian (A. M. caucasica) bú betur af vetrun en Ítölsku bf. (A. mellifera ligustica).
Ræktun hefur stofnbreytt náttúrulegum (villtum) stofnum. Þar af leiðandi er bf. sem að útlit líkist 'Ítalskri' eða 'Carniolan' þarf ekki að vetrast eins vel og hvor stofninn fyrir sig ætti að gera. Þegar þú kaupir drottningu ættir þú alltaf að líta framhjá útlitslegum eiginleikum, en í staðinn, velja á grundvelli sannaðrar reynslu við aðstæður þínar.
Það er einnig breytileiki innan stofna. Þessi breytileiki er notaður við drottningaræktun til að betrumbæta vetrun. Til merkis um þetta er verk bf.ræktandans Everett Hastings (Birch Hills, Saskatchewan). Eftir 1940 fékk Hastings það sem eftir var af Mountain Grey Caucasian stofninum sem upphaflega var fluttur frá Rússlandi til Bandaríkjanna snemma á 20. öldinni. Eftir margra ára úrval þessa stofns eftir harða vetur við hans aðstæður, tók hann að blanda þeim við carniolan stofn árið 1963. Þessi blandaði stofn var valin til að vera mjög vetrar þolinn og fram úr hófi afkastamikill á gresjunum. Þó stofni hans sé ekki lengur haldið við hefur stofninn verið blandað inn í ræktun víðsvegar um allan heim, ekki síst í New World Carniolan stofnsins í Ohio. Þessar bf. nota minna hunang að vetri, hafa stærri bú að vori og hafa hærra hlutfall vetrarlifunar en venjulegar "Ítalska" drottningar frá California
(Mynd 6).
.jpg)
Magn neytts hunangs(þyngdar tap að vetri), sem hlutfall af búum sem lifa af veturinn og fjölda bf.í búi hjá "Ítalskum" drottningum frá Kaliforníu að vori í samanburði við blendinga af "Ítalskra" eðlaðar við "Hastings Carniolans". Við allan samanburður báru blendingar yfirburði fyrir vetrun miðað við þær "Ítölsku", sem bendirtil að munurinn var erfðafræðilegur og ríkjandi arfur (frá Szabo 1980)
Meðferð á búum á veturna
Á flestum svæðum Bandaríkjanna og nokkrum hlýjum svæðum Kanada (td í Suður-BC og Ontario) er vetrun einfalt mál: 1) að ganga úr skugga um búin hafi nóg hunang og frjókornaforða, 2) að nota stofn sem hefur aðlagast svæðinu(veðurskilyrðum) og 3) gera ráðstafanir til að raki safnist ekki fyrir í búinu. Á kaldara svæðum, þurfa búin aðra ákveðnari meðferð við vetrun. Þessi svæði eru stór hluti Kanada, Norðvestur ríkin i austan við Rocky Mountains, Miðvestur ríkin norðan við Kansas og Norðaustur-ríkin norðan Pennsylvania.
Besta leiðin til hleypa út auka raka frá búi að vetri er með efri inngangi(opi). Þessi inngangur er mjög mikilvægur! Rannsókn frá norðurhluta Alberta, hafa til dæmis sýnt að annaðhvort: 1 x 1,5 cm efra flugop eða borað gat 2,5 cm í þvermál í miðju efri kassans auki stórlega styrk búsins , heilbrigði og minnka neyslu hunangsforðans
(mynd 7)
.jpg)
Magn neytts hunangs (þyngd tap að vetri), fjöldi bf. Að vori og nosema smit(þarmasýking)samanborið milli búa með mismunandi flugop: 1) botn og topp flugop, 1 x 1,5 cm hver, 2) botn (1 x 1,5 cm) og efst (2,5 cm þvermál í miðju 2. kassans), 3) botn og hlið (1 x 1,5 cm hvor) og 4) að fullu opinn flugop neðst og ekki op efst (frá Szabo 1982). Mismunandi bókstafir þýða að meðaltöl voru verulega mismunandi
Á kaldari svæðum N. Ameríku gagnast búum af eh skjóli. Það eru tvær algengar aðferðir til að vernda bú sem vetruð eru utandyra. Fyrsta felst í umbúðum úr svörtum vindheldum tvöföldu efni(sól hula). Svarta yfirborð „sólar hulnar“ hitar búið á sólríkum vetrardögum og valda því að klasinn getur sundrast vegna hitnunar inni í búinu við lægri umhverfishita en þeim er eðlislægur. Umbúðirnar voru jafnan heimatilbúnar úr tjöru-pappír eða þakefni, eru iðnaðarframleiddur vaxpappi nú að verða algengari. Önnur aðferð felst í einangrandi umbúðum um búin (einangruð hula). Þessi hula hjálpa búunum að halda hita þegar hiti er mjög lágur, en koma í veg fyrir búin hitni á sólríkum dögum.
Hvaða tegund af umbúðum sem þú ættir að nota fer eftir hvar þú býrð. Sólar hula eykur framleiðni búa á sumum stöðum með tiltölulega mildan vetur. Rannsókn frá Ísrael, hafa til dæmis sýnt að bú sem voru hulin með svörtu plast tjaldi náðu upp ungviði(hitastigi) mánuði áður en bú máluð hvít tvöfölduðu hunangs framleiðslu sína í fyrstu hunang aðflæði í mars
(mynd 8).
.jpg)
Magn hunang safnað frá búum í Ísrael við fyrstu hunangssöfnun (Mars) ef kúpurnar voru málaðar hvítar eða huldar svörtu plasttjaldi
Hefðbundnar sólar hulur standa sig einnig vel í tiltölulega kaldara loftslagi. Besta leiðin til að vetra búin í Minnesota, til dæmis, er einu 3 kassar með sólar hulu (tjöru pappír) frekar en að einangra 2 kassa bú í 4 búa einingum
(mynd 9).
.jpg)
Mynd 9. Hundraðshluti lífslíkur og framleiðni búa vetruðum með fjórum mismunandi aðferðum: pakkningum af fjórum búum pakkað saman með einangrandi hulu, sem voru annað hvort 2 (INS-2) eða 3 (INS-3) kassar á stærð eða stökum búum sólar hulu í 2 (SOL-2) eða 3 (SOL-3) kössum. Framleiðni = (fjöldi lifandi búa eftir vetur) x (Meðaltal hunangs framleiðsla móðurbúanna + meðaltal hunangs framleiðsla afleggjaranna)
Sólar hula, eru hins vegar, ekki notuð við erfiðustu aðstæður á gresjum Kanada. Þótt fjöldi rannsókna á þessu svæði hafa komist að þeirri niðurstöðu að einangra 4 bú í einingu
(mynd 10)
.jpg)
Mynd 10. The Peer 4-Pakki frá Saskatchewan samanstendur af fjórum
tveggja kassa búum er ýtt saman og umbúðir í svarta plast sem innihalda
R-12 batt einangrun. Þakið inniheldur R-20 batta plasteinangrun til
Að koma í veg fyrir blota. Þakið er krossviður og efri inngangur eru fest
með trékubbum.
sína klárlega betri lifun en sólar hula um bú á 2 kössum, er mér ekki kunnugt um samanburður á 4 búa 2 kassa einingum borið saman við 3 kassaeiningu í sólar hulu. Hugsanlega gætu 3 kassa bú umvafin sólar hulu virkað vel á gresjunum, einkum með sífellt hlýrri vetrum.
Bú einnig vetruð innanhúss
(Mynd 11)
.jpg)
Bygging fyrir innanhúsvetrun búa, myndin tekin þegar er
verið að flytja búinn inn. Takið eftir hringrásarkerfi loftræstingar
vifta og röra í lofti og köldu inntaki loft með ljósigildru á hægri
veggnum. Þessi bygging tekur um 1.000 eins kassa bú og er
rekið af Jack og Dorathee Cage
í hita stjórnuðum byggingum. Innanhúss vetrun eru aðeins stundaðar á gresjum Kanada,í Quebec og í Maritime umdæmi. Búins eru oftast flutt inn þegar dagshiti er undir frostmarki (oftast í lok október á gresjunum). Búin eru geymd inni í 5 6 mánuði. Sumir bf.bændur vetra nokkur þúsund bú í sömu byggingu.
Eins og ég nefndi fyrr greininni,vetrast búin best við 5°C. Að halda hitastigi byggingar við 5°C er erfitt vegna þess að: 1)búin gefa frá sér hita og 2) útihitastig sveiflast. Í lok haust hita búin meira frá sér en þarf til að halda hita í 5°C. Ofgnótt hita er fjarlægður með útblæstri heita loftsins í geymslunni og skipta um það með köldu útilofti. Þessu lofti er blásið út með hitastýrðum viftum. Útblásturinn fjarlægir einnig koltvísýring og raka sem hvorutveggja er bf hættulegur í miklu magni. Útblástursviftur eru yfirleitt bundnar inn hringrásar kerfi sem tryggir að loft færist jafnt í byggingunni
(mynd.12)
.jpg)
Mynd 12. Einfölduð skissa af loftræstingu, útblástur og upphitunar kerfi notað í vetrunarbyggingum. Taktu eftir að allir útblástursrör eru búin ljósgildrur til að tryggja að ekkert ljós fari inn í bygginguna. Þó að ljósin trufla vetrun bf inni nota bf.bændur , fyrir reglubundið eftirlit, rautt ljós, sem er bf ósýnilegt. Hringrásarviftur og rásir tryggja að loft í húsinu er vel blandað. Hitari er einungis notaður þegar úti hitastigið er svo lágt að hiti myndaður af búunum getur ekki lengur halda hita á 5 ° C.
Þegar útihitastig er mjög lágt gefa búin frá sér rétt nægilegan hita til að viðhalda innihitastiginu um 5 ° C, við þessar aðstæður er útblástursvifturnar lokaðar. Til að koma í veg fyrir að koltvísýringur og raki hækki, er viðhaldið lágum útblæstri til að tryggja rétt nógu af fersku lofti er blásið inn. það er vandasamt verk að stilla kerfið þannig að það geti að halda loftinu fersku og hita stöðugum). Því ég hvet þig til að ráðfæra sig við sérfræðing áður en þú byrjar framkvæmdir. Ef hitastigið lækkar enn er varahitabúnaður notaður til að hita upp bygginguna. í hlýrri loftslagi, svo sem í Quebec, er kælikerfi í byggingum þegar hitastig hækkar að vori.
( mynd 13)
.jpg)
Vetrarloftræsting f vetrun búa innanhúss. Dæmi. Hvert bú gefur frá sér 3-10 g
af raka / klst og 8-28 wött af hita.Ímyndið ykkur að við flytjum inn 1 kg af
útilofti inn í bygginguna. Þetta loft er -25°C og 100% rakamettað(RM) og
inniheldur því aðeins 0,4g af raka(munið að kalt loft inniheldur ekki mikinn raka).
Þegar þetta eina kg af útilofti er fært inn í bygginguna þar sem lofthiti er 5°C
(60% RM) getur það nú borið 3,4 g af raka. Þannig að fyrir hvert kg af 5°C heitu
innilofti sem blásið er út þá tapast 3g af raka. Til að flytja þessi 3g/kg af raka
þarf 0,25 l/s af lofti að blása út. Ef við flytjum þetta magn af köldu lofti inn í
bygginguna verðum við að framleiða 13 w 7bú til að halda innihita 5°C. Við töpum
einnig 4 w af hita gegnum veggi byggingarinnar, þannig að við þurfum 13+4 =17 w
til að halda hitastiginu 5°C. Látum okkur segja að búin framleiði bara12 w.
Þá þurfum við önnur 5 w / bú frá hitagjafanum.
http://www.capabees.com/main/files/pdf/winteringpdf.pdf
|